Upplýsingar um gjaldeyrisútboð 16. júní 2016 8. júní 2016
Seðlabanki Íslands tilkynnti hinn 25. maí sl. að haldið yrði gjaldeyrisútboð 16. júní næstkomandi þar sem bankinn býðst til að kaupa krónur í skiptum fyrir reiðufé í erlendum gjaldeyri. Nánar tiltekið er um að ræða krónur sem uppfylla skilgreiningu laga nr. 37/2016, svonefndar aflandskrónur. Útboðið fer fram fimmtudaginn 16. júní 2016 og hefst kl. 10:00 fyrir hádegi og stendur til kl. 14:00 eftir hádegi sama dag. Útboðið er liður í heildstæðri aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta, sbr. áætlun ríkisstjórnar Íslands og Seðlabankans um losun fjármagnshafta frá 8. júní 2015.
Hér má finna upplýsingar og gögn í tengslum við útboðið:
Fréttatilkynning
Aðferðafræði við virðismat fjármálagerninga
Kröfur til milligönguaðila vegna peningaþvættis
Tilkynning um frest til skila á gögnum varðandi peningaþvætti
Kaupverð ríkistryggðra verðbréfa samfara gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands hinn 16. júní 2016 (Birt 10. júní 2016).
Kaupverð skráðra verðbréfa á Nasdaq á Íslandi
Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir evrur (Breytt 13. júní 2016)
Til skýringar á breyttum útboðsskilmálum (Birt 14. júní 2016).
Niðurstaða gjaldeyrisútboðs 16. júní 2015 (Birt 21. júní 2016)
Kaup á ríkistryggðum verðbréfum samfara niðurstöðum í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands hinn 16. júní 2016 (Birt 22. júní 2016)
Skilmálar gjaldeyriskaupa á útboðsgengi Seðlabanka Íslands (Birt 22. júní 2016)
Fyrirspurnum aflandskrónueigenda má beina til þeirra aðila sem gert hafa samstarfssamning um milligöngu:
Arion banki hf.
Clearstream Banking S.A.
Euroclear Bank S.A./N.V.
Íslandsbanki hf.
Kvika banki hf.
Landsbankinn hf.
LuxCSD