Seðlabanka Íslands ber lögum samkvæmt að stuðla að fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslumiðlun í landinu og við útlönd. Seðlabankinn setur stefnur sem taka til fjármálainnviða og hlutverks og framkvæmdar bankans á því sviði, þ.e. Stefna um fjármálainnviði og Stefna um yfirsýn með fjármálainnviðum.
Fjármálainnviðir tengja viðskiptavini við fjármálastofnanir og þær innbyrðis, bæði beint og í gegnum markaði enda fela þeir í sér hvers kyns kerfi eða þjónustu sem sinna greiðslumiðlun, uppgjöri eða skráningu greiðslna, verðbréfa og annarra fjármálaviðskipta. Seðlabankinn gegnir ýmsum hlutverkum á þessu sviði. Hann er eigandi, rekstraraðili og þjónustuveitandi tiltekinna fjármálainnviða, hefur yfirsýn með kerfislega mikilvægum innviðum og stuðlar að framþróun, samvinnu og stöðlun í greiðslumiðlun.
Fjármálainnviðir eru grunnkerfi fjármálakerfisins og gegna lykilhlutverki við greiðslur, uppgjör og miðlun fjármuna. Viðnámsþróttur þeirra felst í því að innviðirnir geti staðist áföll, brugðist hratt við rekstrartruflunum og tryggt áframhaldandi virkni nauðsynlegrar fjármálaþjónustu. Seðlabankinn leggur áherslu á að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins í heild með því að stuðla að lágmörkun áhættu, samhæfingu viðbragða og rekstrarsamfellu þeirra innviða sem nauðsynleg fjármálaþjónusta byggist á.
Millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands (MBK) er sjálfstætt kerfi í eigu Seðlabankans. Kerfið skiptist í tvo hluta stórgreiðslukerfi (RTGS) og smágreiðslukerfi (EXP). Stórgreiðslur eru greiðslufyrirmæli að fjárhæð 30 m.kr. eða hærri milli viðskiptavina tveggja fjármálafyrirtækja. Greiðslur milli fjármálafyrirtækja sem eru lægri en 30 m.kr. fara í gegnum smágreiðsluhluta MBK.
Seðlabanki Íslands hefur komið á fót samstarfsvettvöngum á sviði greiðslumiðlunar og fjármálainnviða þar sem fulltrúar, meðal annars fjármálafyrirtækja, stjórnvalda og hagsmunasamtaka, eiga sæti. Starf vettvanganna tekur mið af markmiði Seðlabankans um fjármálainnviði, þ.e. að þeir séu öruggir, skilvirkir, hagkvæmir og aðgengilegir og er ætlað að stuðla að traustum og öruggum innviðum sem þjóna þörfum samfélagsins. Samstarfsvettvangar Seðlabankans eru Greiðsluráð, Reglubókaráð, Framtíðarvettvangur og samstarfsvettvangur um rekstraröryggi fjármálainnviða (SURF).