Vextir við Seðlabanka Íslands 18. júní 2007
ATH: Þessi grein er frá 18. júní 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Gilda frá og með 21. júní 2007
Með vísun til 10. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands ákveður bankastjórnin að vextir fjármálafyrirtækja við Seðlabankann skuli verða eins og að neðan greinir.
| I. Útlán | Vextir á ári |
| 1. Lán gegn veði í verðbréfum til 7 daga * | 13,30% |
| 2. Daglán* | 15,25% |
| II. Innlán og innstæðubréf | |
| 1. Innstæðubréf, til 7 daga ** | 13,20% |
| 2. Bundin innlán í 7 daga ** | 13,20% |
| 3. Viðskiptareikningar *** | 12,75% |
| 4. Bindiskyldar innstæður **** | 13,00% |
Aðrir vextir eru ákveðnir af bankastjórn hverju sinni. Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi fellur úr gildi tilkynning um vexti við Seðlabanka Íslands frá 21. desember 2006.
Reykjavík, 18. júní 2007
SEÐLABANKI ÍSLANDS
| Davíð Oddsson | Eiríkur Guðnason |
| formaður bankastjórnar | bankastjóri |
* ) Forvextir
**) Eftirágreiddir vextir
***) Vextir greiðast í lok vaxtaárs
****) Vextir greiðast í lok hvers vaxtamánaðar