Fara beint í Meginmál

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns 1. júní 2012

Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:

1. Frá The United Kingdom(“UK“) branch of American Life Assurance Company til MetLife Europe Limited, MetLife Limited og MetLife Assurance Limited

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.