Meginmál

Niðurstöður vettvangsathugunar á útlánasafni Arion banka hf.

ATH: Þessi grein er frá 6. nóvember 2012 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi skoðun á útlánasafni Arion banka hf. í samræmi við 8. og 9. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og XIII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Skoðunin beindist að virðismati lána á öðrum ársfjórðungi ársins 2011.