Fara beint í Meginmál

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns24. apríl 2013

Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:

Yfirfærsla skaðatryggingastofns frá Assicurazioni Generali s.p.a. og  Alleanza Taro s.p.a. til Ina Assitalia s.p.a.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar sameiningar innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.