Fara beint í Meginmál

Niðurstöður vegna athugunar á lánasafnsskýrslu Íslandsbanka hf.19. nóvember 2013

Fjármálaeftirlitið hóf, í apríl 2013, athugun á lánasafnsskýrslu (e. Loan Portfolio Analysis Report eða LPAR) Íslandsbanka hf. Lánasafnsskýrslu, sem skilað er mánaðarlega til Fjármálaeftirlitsins, er ætlað að greina frá stöðu útlánasafns lánastofnunar út frá sjónarhorni endurskipulagningar safnsins. Megintilgangur skýrslunnar er að fylgjast með framgangi á endurskipulagningu lánasafns bankans og eru viðskiptavinir flokkaðir niður eftir umfangi og eðli þeirrar endurskipulagningar sem þeir hafa gengið gegnum eða hversu alvarleg fjárhagsstaða þeirra er gagnvart bankanum.