Meginmál

Peningastefna

ATH: Þessi grein er frá 19. mars 2009 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Samkvæmt lögum nr. 5/2009 um breytingar á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands eru ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viss viðskipti við lánastofnanir, ákvörðun bindiskyldu og viðskipti

á gjaldeyrismarkaði. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum bankans og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika.

Næsti fundur peningastefnunefndar er áformaður 19. mars 2009.

Sjá nánar: