SEÐLABANKI ÍSLANDS
auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordal.
Auglýst er eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordal sem Seðlabanki Íslands veitir. Ákveðið var að veita styrkinn í tilefni af 50 ára afmæli Seðlabanka Íslands á árinu 2011. Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands fyrir 1. desember 2011. Fjárhæð styrksins nemur 1.500.000 kr. og verður fjárhæðinni úthlutað í lok árs.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra.
Seðlabanki Íslands • Kalkofnsvegi 1 • 150 Reykjavík • Sími: 569 9600