Matsfyrirtækið Moody‘s birti í dag samantekt helstu niðurstaðna er varða lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands. Þar er einnig að finna upplýsingar um regluverk og aðferðafræði við lánshæfismatið. Hér er ekki um að ræða nýtt mat á lánshæfi ríkissjóðs en fram kemur að lánshæfiseinkunnir Íslands eru sem fyrr Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldir með neikvæðum horfum.
Matsfyrirtækið Moody's hefur birt samantekt með helstu niðurstöðum um lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands
ATH: Þessi grein er frá 23. desember 2011 og er því orðin meira en 5 ára gömul.