Árleg skýrsla Fitch um Ísland 29. febrúar 2012
ATH: Þessi grein er frá 29. febrúar 2012 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings gaf í dag út skýrslu um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands. Skýrslan kemur í kjölfar hækkunar matsfyrirtækisins á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir erlendar langtímaskuldbindingar hinn 17. febrúar. Með þeirri breytingu færðist einkunn ríkissjóðs í fjárfestingarflokk. Lánshæfiseinkunn Íslands er nú BBB- og BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt og F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í innlendri mynt. Horfur eru stöðugar.
Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla Fitch um Ísland 29. febrúar 2012
Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla Fitch um Ísland 29. febrúar 2012