Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2012

ATH: Þessi grein er frá 22. maí 2012 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,50 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 16. maí sl. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,50 prósentur frá og með 1. júní nk. og verða 12,50% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru aftur á móti óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2012:

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,65%

• Vextir verðtryggðra útlána 3,75%

• Vextir af skaðabótakröfum 3,77%