Meginmál

Erindi aðalhagfræðings Seðlabankans á fundi með aðilum vinnumarkaðarins

ATH: Þessi grein er frá 8. nóvember 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands flutti í dag erindi á fundi með samstarfsnefnd aðila vinnumarkaðar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. Í erindinu kynnti Þórarinn meginatriði þjóðhags- og verðbólguspár Seðlabankans sem birtist í fjórða hefti Peningamála 2013. Auk þess greindi hann frá fráviksdæmum af vinnumarkaði.

Meðfylgjandi er skjal sem Þórarinn studdist við þegar erindið var flutt, en það sýnir ýmsar skýringarmyndir og texta með þeim.