Meginmál

Fitch: Skuldatillögur virðast ekki hafa áhrif á ríkisfjármálin

ATH: Þessi grein er frá 6. desember 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Skuldatillögurnar sem miða að því að minnka skuldir heimilanna í gegnum lækkun höfuðstóls húsnæðislána og með skattaívilnun vegna séreignarlífeyrissparnaðar virðast vera í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um aðhaldssemi í ríkisfjármálum, samkvæmt Fitch Ratings. Hins vegar nefnir Fitch að önnur umferð skuldaafskrifta gæti skaðað viðhorf fjárfesta gagnvart íslensku viðskiptaumhverfi og telur fyrirtækið að afnám fjármagnshafta gæti orðið torveldara ef líkur er á að erlendir kröfuhafar beri mestan kostnað að slíkum aðgerðum.

Sjá nánar fréttatilkynningu Fitch Ratings hér:

Sjá ennfremur heimasíðu Fitch Ratings hér: