Afmælisráðstefna til heiðurs Jóhannesi Nordal: Í ljósi reynslunnar 9. maí 2014
Fimm erindi verða flutt á ráðstefnunni:
Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytur fyrsta erindið og nefnir það: Jóhannes Nordal og peningamál á seinni hluta tuttugustu aldar.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, flytur erindið: Jóhannes Nordal – fjölhæfur forystumaður.
Ásgeir Jónsson, lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands, flytur erindið: Aftur til fortíðar? Er stýring peningamagns með bindiskyldu framtíðin?
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flytur erindið: Hvernig stuðlum við að virku og stöðugu fjármálakerfi á Íslandi?
Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, flytur erindið: Sjálfstæð peningastefna og fjármagnshöft.
Fundarstjóri er Sveinn Agnarsson.
Allir eru velkomnir.