Tilkynning vegna umfjöllunar um setningu reglna nr. 565/2014 um gjaldeyrismál 25. júní 2014
Í flokk blandaðra samninga hafa einnig fallið samningar um líf- og sjúkdómatryggingu með söfnun. Þrátt fyrir það gerir 6. mgr. 11. gr. reglna nr. 565/2014, um gjaldeyrismál, einstaklingum sem gert hafa samninga við erlend vátryggingafélög um líf- og sjúkdómatryggingu með söfnun frá 28. nóvember 2008 fram til gildistöku reglnanna hinn 19. júní sl. kleift að standa við þá samninga í erlendum gjaldeyri. Áréttað er að með líftryggingu í þessu samhengi er átt við hefðbundnar áhættulíftryggingar með söfnunarþætti þar sem vátryggingarfjárhæðin er óháð uppsöfnuðum höfuðstól. Tilgangur framangreindrar heimildar er að tryggja að einstaklingar geti viðhaldið líftryggingunni þar sem erfitt gæti verið fyrir þá að fá sambærilega líftryggingu annars staðar, t.d. vegna breytts áhættumats.
Rétt er að árétta að nýjar reglur um gjaldeyrismál sem tóku gildi hinn 19. júní sl. fólu ekki í sér nýja túlkun eða breytingu á framkvæmd af hálfu Seðlabankans. Það er ávallt á ábyrgð söluaðila að sjá til þess að seldir samningar, sama hvaða nafni þeir nefnast, samrýmist lögum og reglum um gjaldeyrismál.Seðlabanki Íslands mun á næstu dögum upplýsa vátryggingafélög og söluaðila um þeirra stöðu og verður leitað leiða til þess að lágmarka hugsanlegt óhagræði þeirra fjölmörgu einstaklinga sem gert hafa slíka samninga við erlend vátryggingafélög.
Seðlabankinn ítrekar enn fremur að einstaklingar ættu ekki að þurfa að bregðast við að svo stöddu og að Seðlabankinn muni leitast við, í kjölfar samráðs við vátryggingafélögin að upplýsa almenning frekar um stöðu mála.Þá leggur Seðlabankinn áherslu á að eiga góða samvinnu við viðkomandi vátryggingarfélög til þess að lágmarka neikvæð áhrif á einstaklinga.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is og Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is.