Fyrirframgreiðsla á erlendum lánum Ríkissjóðs Íslands og Seðlabanka Íslands 22. júlí 2014
Ákvörðun um fyrirframgreiðslu kemur í framhaldi af skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á Evrópumarkaði sem tilkynnt var um 8. júlí síðastliðinn að fjárhæð 750 milljónir evra, eða jafnvirði 116 ma.kr. Útgáfan veitti svigrúm til að endurgreiða Norðurlandalánin, sem bera óhagstæðari vexti. Útgáfa ríkisjóðs og endurgreiðsla lána nú hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs og Seðlabankans saman, en heildarskuldir ríkissjóðs hækka um 1,9% af VLF aðallega vegna þess að hluta lántökunnar er varið til að greiða niður skuldir sem færðar voru hjá Seðlabankanum. Stærð gjaldeyrisforða er óbreytt vegna ofangreindrar skuldastýringar.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600