Fara beint í Meginmál

Jólapeysan og kynning á vaxtaákvörðun8. desember 2014

Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur fallist á beiðni Barnaheilla um að styðja átak gegn einelti sem nú er í gangi með því að klæðast jólapeysu er hann greinir frá vaxtaákvörðun á miðvikudaginn, 10. desember, að því tilskildu að nægileg fjárhæð safnist í gegnum áheit á hann á heimasíðunni https://www.barnaheill.is/.

Þeir sem hafa áhuga á að sjá Má í jólapeysunni á miðvikudaginn og vilja um leið styrkja gott málefni geta heitið á hann í gegnum síðuna hér.  

Nánari upplýsingar á heimasíðunni https://www.barnaheill.is/.