Meginmál

Erindi Sigríðar Benediktsdóttur: Fjármálastöðugleiki og fjármagnshöft

ATH: Þessi grein er frá 26. febrúar 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Sigríður Benediktsdóttir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs í Seðlabanka Íslands hélt í dag erindi á hádegisfundi í Iðnó í Reykjavík. Erindið ber heitið Fjármálastöðugleiki og fjármagnshöft.

Fundurinn var haldinn af fjórum stjórnmálaflokkum á Alþingi, þ.e. Bjartri framtíð, Pírötum, Samfylkingu og Vinstri grænum. Fundarefnið var losun fjármagnshafta.

Við flutning erindisins studdist Sigríður við texta og skýringarmyndir í meðfylgjandi skjali: