Meginmál

Grein Þórarins G. Péturssonar um yfirstandandi kjaraviðræður

ATH: Þessi grein er frá 27. apríl 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, ritaði grein um yfirstandandi kjaraviðræður sem birt var í Fréttablaðinu á sumardaginn fyrsta, 23. þessa mánaðar. Í greininni lýsir Þórarinn m.a. fyrirsjáanlegum afleiðingum þess fyrir verðlag og vaxtaþróun í landinu ef kröfur um miklar hækkanir nafnlauna ganga eftir og nái til stórs hluta vinnumarkaðarins.