Fara beint í Meginmál

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna7. júlí 2015

Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna:

Yfirfærsla hluta skaðatryggingastofns Royal & Sun Alliance Insurance plc frá útibúi sínu á Ítalíu til ITAS - Istituto Trention-Alto Adige per Assicurazioni.

Yfirfærsla skaðatryggingastofns Sun Insurance Office Limited frá útibúi sínu á Ítalíu til ITAS - Istituto Trention-Alto Adige per Assicurazioni.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.