Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2015 hefur verið vistuð á vef bankans.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 10. júní. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2015.