Fara beint í Meginmál

Kynning fyrir menntaskólanema í Seðlabankanum21. október 2015

Hópar námsfólks og aðrir hópar koma reglulega í heimsókn í Seðlabankann. Í morgun kom hingað hópur nemenda í hagfræðiáfanga í Menntaskólanum í Kópavogi ásamt kennara sínum. Þau fengu stutta kynningu á helstu verkefnum og hlutverki Seðlabankans, svo sem í því að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika, í gjaldeyrismálum og fleiru.

Meðfylgjandi mynd var tekin við lok kynningarinnar.