Meginmál

Losun hafta og leiðin að stöðugleika

ATH: Þessi grein er frá 4. desember 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri flutti í morgun erindi á málþingi Félags löggiltra endurskoðenda um losun fjármagnshafta og leiðina að varanlegum stöðugleika. Í erindinu rakti Arnór m.a. þau atriði sem kölluðu á fjármagnshöftin á sínum tíma og hann fjallaði einnig um ýmsar umbætur sem komið hefur verið á.