Sænes ehf. og Grýtubakkahreppur hæfir til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga 11. janúar 2016
ATH: Þessi grein er frá 11. janúar 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Hinn 8. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Sænes ehf. sé hæft til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga sem nemur allt að 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Grýtubakkahrepp hæfan til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga, með óbeinni hlutdeild.