Fitch Ratings staðfestir óbreytt lánshæfismat ríkissjóðs: Horfur stöðugar 15. janúar 2016
ATH: Þessi grein er frá 15. janúar 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB+ og fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt sem A-. Lánshæfismatið fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er óbreytt sem F2 og fyrir landseinkunnina (e. Country Ceiling) sem BBB+. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar.
Frétt Fitch er hér: Fitch Affirms Iceland at 'BBB+'; Outlook Stable.