Meginmál

Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis

ATH: Þessi grein er frá 18. janúar 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2015 hefur verið vistuð hér á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 9. desember 2015. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2015.