Meginmál

Salka2 ehf. og Þorkell Magnússon hæf til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf.

ATH: Þessi grein er frá 3. maí 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Hinn 29. apríl sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Salka2 ehf. sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf. sem nemur allt að 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Þorkel Magnússon hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf., með óbeinni hlutdeild.