Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns 17. maí 2016
ATH: Þessi grein er frá 17. maí 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr.
56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða
yfirfærslu vátryggingastofns:
Yfirfærsla vátryggingastofns Guardian Assurance Limited til
R&Q Insurance (Malta) Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum
athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins
mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.