Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið reglubundinni umræðu um íslensk efnahagsmál 22. júní 2016
ATH: Þessi grein er frá 22. júní 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Hinn 20. júní síðastliðinn fór fram reglubundin umræða í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi samkvæmt fjórðu grein stofnsáttmála AGS (e. Article IV discussion). Sendinefnd AGS var hér á landi til viðræðna við íslensk stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila í apríl síðastliðnum og eru skýrslur þeirra um íslenskt efnahagslíf birtar í dag.
Sjá hér að neðan gögn sem tengjast umræðunni um Ísland:
Iceland: Staff Report for the Article IV Consultation 2016.pdf