Fara beint í Meginmál

Niðurstaða athugunar á mati á hæfi og tilhlýðileika fjármálaþjónustu Arion banka hf.21. september 2016

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á mati Arion banka á hæfi viðskiptavina sinna vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar og tilhlýðileika fjármálaþjónustunnar þann 6. maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort verklag og eftirlit bankans í tengslum við öflun upplýsinga og ráðlegginga vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar væri í samræmi við 15. og 16. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr. 35. og 36. gr. reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskipti fjármálafyrirtækja.