Meginmál

Niðurstaða um að Aktiva lausnir ehf. hafi stundað greiðsluþjónustu án tilskilins leyfis

ATH: Þessi grein er frá 5. október 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Aktiva lausnir ehf. hóf í sumar að bjóða þjónustu sína við milligöngu um lánveitingar á milli viðskiptavina sinna. Hlutverk Aktiva lausna ehf. er m.a. að tengja saman lántakendur og lánveitendur á sk. lánatorgi. Þjónusta félagsins lýtur einnig að flokkun lántakenda eftir greiðslumati og móttöku og miðlun greiðslna á milli lántakenda til lánveitenda.