Fitch breytir horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar 13. janúar 2017
ATH: Þessi grein er frá 13. janúar 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Matsfyrirtækið Fitch Ratings breytti í dag horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar og staðfesti lánshæfiseinkunnina BBB+ fyrir erlendar skuldir. Lánshæfismat á skuldabréfum í erlendri og innlendri mynt var einmitt staðfest sem BBB+. Landsþak er staðfest BBB+ og skammtímaskuldir í erlendri mynt ásamt víxlum (e. commercial paper) hafa einkunnina F2.
Hér fylgir lausleg þýðing á frétt Fitch frá því í dag.
Hér er upphafleg frétt Fitch frá því í dag.