Niðurstaða athugunar á eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Borgun hf. 24. febrúar 2017
ATH: Þessi grein er frá 24. febrúar 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið hóf athugun á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka hjá Borgun hf. með bréfi dagsettu hinn 27. maí 2016. Athugunin
beindist að framfylgni Borgunar hf. við lög nr. 64/2006 um aðgerðir gegn
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka vegna færsluhirðingar félagsins
erlendis, sbr. einnig leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 5/2014 um
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Gagnsaei-Borgun24022017