Niðurstöður athugunar hjá Kviku banka hf. á tilteknum þáttum í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka 14. mars 2017
ATH: Þessi grein er frá 14. mars 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið lauk athugun hjá Kviku banka hf.
(hér eftir Kvika) í febrúar 2017. Athugunin beindist að tilteknum þáttum í
aðgerðum Kviku gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr.
64/2006. Í athuguninni var lögð sérstök áhersla á könnun Kviku á áreiðanleika
upplýsinga um viðskiptamenn sína, reglubundið eftirlit með samningssambandinu
við viðskiptamenn, tilkynningarskyldu og þjálfun starfsfólks.
Gagnsaeistilkynning-Kvika_AML-14032017