Drög að reglum vegna tæknilegra framkvæmdarstaðla sem fylgja Solvency II 16. mars 2017
ATH: Þessi grein er frá 16. mars 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út fjögur umræðuskjöl, nr. 3 -
6/2017. Umræðuskjölin innihalda drög að reglum til að innleiða tæknilega
framkvæmdarstaðla sem fylgja Solvency II löggjöf ESB. Reglurnar verða settar
með stoð í lögum nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.
Jafnframt útgáfunni sendi Fjármálaeftirlitið frá sér
dreifibréf til viðeigandi umsagnaraðila. Fjármálaeftirlitið óskar eftir því að
athugasemdir við umræðuskjölin berist eftirlitinu eigi síðar en 30. mars nk.