Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns 23. mars 2017
ATH: Þessi grein er frá 23. mars 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Hér með tilkynnist um fyrirhugaða yfirfærslu
vátryggingastofns:
Yfirfærsla vátryggingastofns frá Colbourne Insurance Company
Limited til NRG Victory Reinsurance Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum
athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins
mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.