Fara beint í Meginmál

Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2016 23. júní 2017

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með  heildarniðurstöðum ársreikninga ársins 2016 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum (einu nafni lánastofnanir), verðbréfafyrirtækjum, rekstrarfélögum verðbréfasjóða, ásamt upplýsingum um heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri einstakra rekstrarfélaga og heildareignir fagfjárfestasjóða í rekstri rekstrarfélaga og annarra rekstraraðila. Jafnframt eru upplýsingar um Íbúðalánasjóð, greiðslustofnanir og innlánsdeildir samvinnufélaga.