Breyting á álagningu dagsekta vegna reglubundinna gagnaskila 22. nóvember 2017
ATH: Þessi grein er frá 22. nóvember 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Hinn 1. janúar
2018 verður breyting á framkvæmd Fjármálaeftirlitsins við álagningu dagsekta á
eftirlitsskylda aðila vegna dráttar á reglubundnum gagnaskilum. Fjárhæðir dagsekta
munu frá þeim tíma taka mið af stærð og fjárhagslegum styrkleika viðkomandi og
nema frá 25.000 krónur til 100.000 krónum á dag.
Fjármálaeftirlitið
tilkynnti eftirlitsskyldum aðilum um hina breyttu framkvæmd með bréfi, dags.
16. nóvember 2017.