Standard og Poor's staðfestir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs 22. desember 2017
ATH: Þessi grein er frá 22. desember 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Í samræmi við birtingaráætlun sína staðfesti matsfyrirtækið S&P Global Ratings A/A-1 í dag, 22. desember 2017, lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í erlendum og innlendum gjaldmiðlum. Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti líkunum á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum.
Sjá hér frétt S&P: Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs staðfest