Leikskólabörn í Vesturborg fræðast um verðbólgu og fjármál í Seðlabankanum 17. maí 2018
ATH: Þessi grein er frá 17. maí 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Nemendur í leikskólanum Vesturborg komu á dögunum ásamt kennurum sínum í heimsókn í Seðlabankann til að fræðast um seðla, mynt og aðra greiðslumiðla og hin ýmsu verkefni sem Seðlabankinn þarf að sinna á Íslandi. Jafnframt voru börnin frædd um mikilvægi þess að Seðlabankinn stuðli að stöðugu verðlagi svo að verðbólgudraugurinn komist ekki aftur á kreik. Þá var rætt um það hve mikilvægt það væri að fjármálafyrirtæki væru vel rekin og í góðu fjárhagslegu jafnvægi, landi og þjóð til heilla.
Meðfylgjandi mynd af börnunum og kennurum þeirra var tekin að lokinni heimsókn. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið við að kenna þeim sem erfa landið helstu tökin við efnahagsstjórnina.
Meðfylgjandi mynd af börnunum og kennurum þeirra var tekin að lokinni heimsókn. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið við að kenna þeim sem erfa landið helstu tökin við efnahagsstjórnina.