Meginmál

Erindi Liikanen seðlabankastjóra Finnlands í Hörpu í dag

ATH: Þessi grein er frá 6. júní 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabankastjóri Finnlands, Erkki Liikanen, heldur erindi í Kaldalóni í Hörpu í dag, miðvikudaginn 6. júní kl. 15:00. Erindið sem verður flutt á ensku ber yfirskriftina „Reforming the EU banking system, where do we stand?“

Erkki Liikanen hefur verið seðlabankastjóri Finnlands frá árinu 2004 en lætur af störfum í júlí nk. Hann hefur á síðustu árum einnig verið þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir að hafa stýrt nefnd um umbætur á bankakerfi Evrópusambandsins, m.a. varðandi mögulegan aðskilnað viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi. Yfirleitt er vísað til skýrslu nefndarinnar sem Liikanen-skýrslunnar.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér