Meginmál

Kynning aðstoðarseðlabankastjóra á efni Peningamála hjá Íslandsbanka

ATH: Þessi grein er frá 3. september 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri kynnti efni Peningamála 2018/3 og annað sem lá til grundvallar ákvörðun og yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birt var miðvikudaginn 29. ágúst síðastliðinn á fundi hjá Íslandsbanka síðastliðinn föstudag. Hefð er fyrir því að stjórnendur í Seðlabankanum séu með kynningar af þessu tagi í fjármálafyrirtækjum í tengslum við útgáfu Peningamála eftir vaxtaákvörðun og er kynning Rannveigar nú aðgengileg hér á vefnum.