Fjármálaeftirlitið hefur metið Norðurvör ehf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf. 29. apríl 2019
ATH: Þessi grein er frá 29. apríl 2019 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið
hefur komist að þeirri niðurstöðu að Norðurvör ehf. sé hæft til að fara með
virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf. sem nemur allt að 20%, sbr. VI.
kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Þorbjörn Atla Sveinsson, eiganda
Norðurvarar ehf., hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum
fjárfestum hf. með óbeinni hlutdeild.