Meginmál

Lífeyrissparnaður nam rúmlega 5.000 milljörðum kr. við lok þriðja ársfjórðungs 2019

ATH: Þessi grein er frá 2. desember 2019 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Fjármálaeftirlitið hefur birt upplýsingar um heildareignir samtryggingar- og séreignarsparnaðar lífeyrissjóða og sundurliðun þeirra miðað við lok þriðja ársfjórðungs 2019 ásamt sambærilegum gögnum er ná aftur til þriðja ársfjórðungs 2017. Hér er einnig stutt samantekt þeirra upplýsinga sem þar er að finna.