Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 6. febrúar 2020
ATH: Þessi grein er frá 6. febrúar 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Nítjándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi var haldinn 6. febrúar nk. kl. 09:00 með efnahags- og viðskiptanefnd.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu mættu á fundinn.
Útsendingu frá fundinum má finna á vef Alþingis.