Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns 4. mars 2020
ATH: Þessi grein er frá 4. mars 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Sunderland Marine Insurance Company Limited til The North of England Protecting & Indemnity Association Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 3. mars 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.