Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur gefið út leiðbeinandi tilmæli nr. 1/2020 um samræmda framsetningu tiltekinna skýringarliða í ársreikningum vátryggingafélaga. Tilgangur tilmælanna er að skýra hugtakanotkun og framsetningu lykilstærða og stuðla þannig að auknu gagnsæi og samræmi í efni og framsetningu fjárhagsupplýsinga vátryggingafélaga. Við útgáfu þessara tilmæla falla leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2019 úr gildi. Við gerð tilmælanna var höfð hliðsjón af þeim venjum sem skapast hafa á vátryggingamarkaði, en jafnframt var horft til þeirrar þróunar sem hefur orðið á markaðnum, sérstaklega með innleiðingu Solvency II tilskipunarinnar.
Leiðbeinandi tilmæli um samræmda framsetningu í ársreikningum vátryggingafélaga18. mars 2020
ATH: Þessi grein er frá 18. mars 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.