Ársfundur Seðlabanka Íslands í vefútsendingu 25. mars 2020
ATH: Þessi grein er frá 25. mars 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Ákveðið hefur verið að ársfundur Seðlabanka Íslands, sem haldinn er í dag miðvikudaginn 25. mars, verði takmarkaður við örfáa þátttakendur. Er það í samræmi við tilmæli stjórnvalda um takmarkanir á samkomuhaldi.
Fundurinn hefst klukkan 16:00 og verður í beinni útsendingu á vef Seðlabankans.