EIOPA mælir með að vátryggingafélög grípi til aðgerða vegna COVID-19 6. apríl 2020
ATH: Þessi grein er frá 6. apríl 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Stjórn Evrópsku lífeyris- og vátryggingaeftirlitsstofnunarinnar (EIOPA) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna COVID-19 faraldursins. Þar mælir EIOPA meðal annars með að vátryggingafélög hugi að varfærni í ákvarðanatöku varðandi arðgreiðslur og breytileg starfskjör. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands tekur undir tilmæli EIOPA og hvetur íslensk vátryggingafélög til að grípa til þeirra aðgerða sem ráðlagðar eru.